miðvikudagur, júní 25, 2003

Það er svo mikið að gera hérna í apótekinu hjá okkur að það gefst ekkert rosa mikill tími til að skrifa... en samt aðeins :) Já ég fór á barinn á laugardeginum og hlustaði á hann frænda minn... hann er náttúrulega bara yndislegur!! Syngur eins og engill!! Það var voða gaman, við Heiða "litla" (Heiða Árna systir Júlíu, sem sagt ekki Heiða mín heldur hin:)) skelltum okkur, það hefði samt mátt vera meira af fólki, en ætli það sé ekki að spara sig fyrir næsta laugardag... Írafár! :) JEI!!
Veit ekkert hverju ég get logið meira í ykkur... heyrumst því síðar... Súlan

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home