föstudagur, júní 20, 2003

Jæja þá er Lyfja tekin við apótekinu. Nýtt tölvukerfi, nýr kassi og margt annað að breytast, allt brjálað að gera! En þetta verður fínt.
17. júní var ég nú bara í rólegheitunum heima, nennti ekki á ball á Egilsstöðum og nennti heldur ekki yfir á Reyðarfjörð þar sem að hátíðardagskráin fór fram!! Heiða hringdi um kvöldið og leyfði mér að hlusta á Haukdal syngja "Open your heart" í beinni :) æðislegt! Nú er ekki nema vika í ballið með Írafár... JEI!! :) Svo verður hann Einar Ágúst FRÆNDI MINN ;) og Gunni Óla að spila í Stúkunni annað kvöld... maður lætur sig að sjálfsögðu ekki vanta þar!! :)
Við mamma fórum á opinn miðilsfund í gærkvöldi með Þórhalli Guðmundssyni... hélt ég myndi deyja þegar hann stormaði til okkar!! Jeramías!! En ekkert smá gaman :) Látum þetta duga í bili... Súlan!!
P.S. Sigurlaug... Tók eftir því í hádeginu þegar ég fór út að borða að ég er farin að plokka hörðu endana af frönsku kartöflunum eins og þú gerir!! :) Frekar fyndið... þær hafa ekki böggað mig hingað til!! En ekki er öll vitleysan eins!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home