sunnudagur, mars 28, 2004

Vaknaði í morgun, dró frá glugganum og jú það var snjór!! Hélt það væri sólskin því það var eitthvað svo mikið bjart!! Æðislegt :)
Við Anna Kristín létum loksins verða af því að hittast í gær! Fórum rúnt í bæinn á Jennanum og fengum okkur ís í ísbúðinni á Suðurlandsbrautinni... held það heitir Íscafé! Ekkert smá gott. Keyrðum svo "eitthvert" og enduðum einhversstaðar hjá Rauðavatni og hálf villtumst inni í botnlangagötum í Seljahverfinu Okkur tókst þó að lokum að enda í Kópavoginum! Frekar fyndið!! En svona er það þegar Sigurlaug er ekki með í för :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home