Jiii finnst ykkur síðan mín ekki fín eftir breytingarnar?! :) Gat þetta auðvitað ekki sjálf, þannig að ég lét tölvuna bara í hendurnar á honum Heimi mínum
og nú er ég bara nokkuð sátt við blogspotið, í bili allavegna. Er nú samt ekki ennþá sátt við teljarann, þar sem hann tók upp á því að núlla sig allt í einu! En jæja...
Þá er þessi helgi að verða búin... búið að vera fín helgi! Á föstudagskvöldið fórum við á Hafið Bláa. Sagði Heimi ekkert hvert við værum að fara heldur brunaði bara með hann út úr bænum :) var mikið að spá í að binda fyrir augun á honum, en kunni svo ekki við það þar sem þetta var nú næstum klukkutíma ferð héðan frá Nesinu :) En það fóru nú að renna á drenginn tvær grímur þegar ég beygði út af afleggjaranum til Þorlákshafnar... spurði hvert ég væri eiginlega að fara, hvort ég væri bara eitthvað á rúntinum, klukkan væri að verða sjö og hann væri að vera svangur!! Jæja hann fékk allavegna vel að borða og átum við yfir okkur af humri!
Frábær staður og geggjaður matur!! Mæli eindregið með honum!!
En það gerðust undur og stórmerki í dag... Úrsúla Manda fór í Bónus!! Jabb og það á sunnudegi! Má samt taka það fram að við byrjuðum á að fara í Europris en enduðum í Bónus! Fórum í Europris hérna á Grandanum, okkur leist einkar vel á þetta svaðalega rými sem var þarna en eftir að hafa litið aðeins í kringum okkur, komumst við að því að þarna er eiginlega ekki seldur neinn matur!! Ég meina það... í allri þessari skemmu! Já þannig að stefnan var bara tekin á Bónus. Las nefnilega í Mogganum þegar ég var á leiðinni frá Þýskalandi, að búðin hér fyrir ofan mig ætti að vera opin á sunnudögum til kl. 18! Þar með hét ég því að nú gæti ég sko farið og verslað á sunnudögum! Myndi nú segja að þetta væri bara nokkuð góð byrjun hjá mér
Fór á bókasafnið í síðustu viku og náði loksins bókinni hennar Ruthar Reginalds. Það er nú aldeilis við hæfi að lesa hana núna þar sem aðal sögupersónan er númer 1,2 og 3 í fjölmiðlum þessa dagana! :) Tók líka bókina Gleymið að þið áttuð dóttur, bíð spennt eftir að byrja á henni!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home