miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Í VINNUNNI

Jamm mætti í vinnuna í morgun. Það hefði nú samt verið ljúft að fá hringingu til að láta vita að það væri ekki heldur vinna í dag :) en svona er þetta! Mjög þægilegt að fá einn frían virkan dag í viku, á bara að vera þannig! Húsið var þvegið að utan í gær og í nótt var verið að hreingera hérna inni. En það var svoleiðis brækjan hérna í kringum húsið í morgun (og er reyndar enn) en svona þokkalegt loftið hér inni. Hefur allavegna skánað með deginum.
Sé fram á gott sjónvarpskvöld... E.R. (síðasti þáttur endaði svo spennandi, Dr. Einhenti lennti undir þyrlunni) og svo nýji þátturinn á Stöð 2, Summerland. Er jafnvel að spá í að byrja á ponsjoinu sem ég ætlaði alltaf að hekla mér.

Júlía Rós - eða Kristjana ef þú lest þetta, hvenær kemur Kristjana suður?! Þýðir það ekki matur?! :)

GOTT FÓLK, MÁNUÐUR TIL JÓLA!!! Jíííííí... :o)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home