fimmtudagur, janúar 13, 2005

Leti...

Já það er mikil bloggleti sem hrjáir mig þessa dagana, vægt til orða tekið!
En nú er klukkan rétt um tíu og ég er búin að liggja hérna í rúminu í einn og hálfan tíma, vafin inn í tvær sængur, að borða jarðarber og hlusta á vindinn og rigninguna dynja á glugganum :) frekar notalegt!

Annars fórum við aðeins í Smáralindina í dag eftir vinnu og enduðum á TGF... ohh það var gott! Tók að sjálfsögðu réttinn okkar Sillu ostastangirnar í forrétt og Chicken Fingers í aðalrétt!! Klikkar ekki :) Svo var Jens greyinu rennt í gegnum bílaþvottastöð og varð svakalega fínn á eftir. Nema hvað þetta var auðvitað bara eins og að standa upp og detta, hann var orðinn skítugur þegar við komum heim!! En ég skolaði auðvitað bara af honum aftur í bílageymslunni :)
Fórum reyndar í Byko í Breiddinni til að kaupa uppþvottagrind, langaði að skipta út þessari sem ég átti, en langaði nú samt bara í eins (sem sagt ég vildi nýja)!! En almáttugur, hvað er málið að geta ekki átt hvíta plain uppþvottagrind?! Nei ég bara spyr... það sem var í boði var allt í einhverjum hræðilegum pastellitum... hlandgult, ljós-föl-blátt, hryllilega ljótur ljós grænn litur og fleira í þeim dúr!!! Ég spurði nú bara afgreiðslu drenginn hvað málið væri!? Hvað væri eiginlega að þessu liði og hvort það væri virkilega ekki hægt að fá þetta bara í hvítu?!?! Hann var nú ekki alveg að skilja þennan æsing í mér! Jesús eini... En Heimir benti mér svo góðfúslega á að ég gæti keypt þarna gráa aðeins stærri grind :) var ekki alveg að kaupa það svona í fyrstu atrennu en féllst á það að lokum!! Er nú samt ekki alveg að fíla það að fá ekki hvíta!!

Jæja er að hugsa um að lesa aðeins áður en ég svíf í draumalandið...
Guten nacht!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home