Er ég ein um að vera miður mín yfir útlitinu á aumingjas Eiríki? Var að horfa á fréttirnar þar sem hann var á æfingu. Hvað er málið með hárið á honum, spyr ég enn og aftur!? Er Svavar ekki með í för núna? Hann hlýtur allavegna að sjá að Eiríki bráðvantar djúpnæringu. Og hvað er þetta með toppinn á honum... þetta er eins og einhvers konar hreiður þarna á hvirflinum! Ég bind enn vonir við að það verði eitthvað suprise á fimmtudagskvöldið, ætla rétt að vona það, trúi ekki að hann verði sendur svona fram á svið!
Við erum búin að hafa það svakalega gott um helgina. Heimir var í fríi á föstudeginum og við vorum mætt snemma í dýragarðinn. Mikill munur á að mæta þar á sumartíma en á veturnar. Miklu meira af fólki sem þýðir auðvitað stærri raðir. Þökkuðum fyrir að vera með árskortið núna :) Við fórum svo niður á Ráðhústorgið og hittum Hannibal, Hrafnhildi og Alexander, röltum Strikið og niður á Nýhöfn. Þvílíka menningin þar á sumrin! Æðislegt að sitja og fylgjast með mannlífinu.
Í dag vorum við að mestu heima. Heimir skrúbbaði svalirnar og bar svo í viðinn og ég þreif gluggana. Nú eru svalirnar bara eins og nýjar, ægilega fínar :) Hlakka til að liggja úti í sólbaði á morgun.
Ég hugsaði: það hlýtur jafnvel að geta verið skemmtilegt að verða gamall ef árin eru geymd sem auðæfi en ekki gerð að skrefum í átt til grafar.
(Nordal Grieg)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home